Eginleikar:
Tegund: Spanhelluborð með viftu
Gerð: Ofan á borðplötu
Framleiðandi: AEG
Litur: Svartur
Orkuflokkur: A+
Ytra mál í mm HxDxB: 520x212x830
Gatmál í mm HxB: 490x780
Heildarafl: 7200 W
Fremri vinstri hella, w/mm: 2300-3200/210
Fremri hægri hella, w/mm: 2300-3200/210
Aftari vinstri hella, w/mm: 2300-3200/210
Aftari hægri hella, w/mm: 2300-3200/210
Samtengjanlegar hellur: Já
Eftirhitagaumljós: Já
Hægt að gera hlé á eldun: Já
Hægt að halda heitu: Já
„Hob2Hood“: Já
„Boostervirkni“: Já
Barnalæsing: Já
Sjálfvirk öryggisslökkvun: Já
Tímastillir: Já
Nettengjanlegt: Nei
Útskurðarradíus: 5°
Snúrulengd í mm: 1500
Öryggi: 2x16 amper
Hraðastillingar á viftu: 3 + kraftstilling
Afköst minnst/mest: 250/585 m3/klst
Hljóðstyrkur minnst/mest: 54/70 dB
„Auto Breeze“: Já
Kolasía fylgir með: Já
Útblásturssett fylgir með: Nei
|
Lýsing:
Spanhelluborð frá AEG með innbyggðri viftu sameinar tvö eldhústæki í eitt og mætir þannig helstu þörfum eldhússins. Helluborðið er með samtengjanlegum hellum, tímastilli og kraftmikilli viftu.
Spanhelluborð
Eru mun fljótvirkari og öruggari en venjuleg helluborð. Botninn á pönnunni og/eða pottinum er það eina sem hitnar á meðan hellan sjálf helst köld viðkomu. Þetta bæði sparar orku og minnkar hitatap við eldun.
Innbyggð vifta
Með innbyggðri viftu er einfaldara að skipuleggja eldhúsið. Innbyggða viftan sýgur gufu og lykt beint af hellunni svo það verði alltaf hrein og fersk lykt í eldhúsinu þínu.
„Auto Breeze“
Eftir að slökkt hefur verið á viftunni heldur hún áfram að vinna á lægstu hraðastillingu í 20 mínútur. Bæði til þess að tryggja uppgufun þess raka og til að eyða þeirri lykt sem eftir kann að vera eftir að þú hefur lokið þinni eldamennsku.
Eldunarsvæði
Spanhelluborðið er með fjórum hellum en hægt er að sameina tvær hellur í eina sé þörf á stærra eldunnarsvæði.
Stjórnborð
Með sleðatökkum sem eru auðveldir og þægilegir í notkun. Þú einfaldlega stillir hitastigið með því að renna fingrinum eftir sleðatakkanum.
Tímastillir
Fyrir hverja hellu er tímastillir sem slekkur sjálfkrafa á hellunni þegar valinn tími er liðinn.
PowerBoost
Háhitaspan er á öllum hellum sem er tilvalið þegar þarf að snöggsteikja eða ná upp suðu.
OptiHeat
Þrjár forstilltar hitastillingar, til að sjóða, halda heitu eða til að velgja.
Stop&Go
Takkinn setur helluborðið á pásu á meðan þú sinnir óvæntum erindum. Heldur hita á pottinum og þegar pásan er tekin af fer hellan aftur á fyrri stillingu.
Pottar og pönnur
Ekki er víst að allir pottar eða pönnur gangi á spanhellur. Auðvelt er að ganga úr skugga um það með því að setja segul á botninn á pottum eða pönnum, ef segullinn helst á botninum þá, bingó, gengur á spanhellur.
Hob2Hood
Með Hob2Hood virkninni er hægt að láta helluborðið og viftuna vinna saman. Sogkrafur viftunnar er stilltur eftir þinni matreiðslu.
Hitaminni
Helluborðið man stillingarnar í 60 sekúndur ef, til dæmis, þú hellir niður eða þarft að taka pottinn/pönnuna af hellunni.
Kolafilter
Skipta þarf reglulega um kolafilter eða á eins til tveggja ára fresti. Viftan lætur vita þegar þarf að skifta um kolafilter og lætur einnig vita þegar þrífa þarf fitufilterið.
Og svo hitt
Barnalæsingin kemur í veg fyrir að kveikt sé að helluborðinu fyrir slysni. Fitusíur má þvo í uppþvottavél.
|