Vörunúmer: SAWD90T984ASH/S4
Heiti: Samsung �vottavél/�urrkari Sambyggt
Annað heiti:
Eginleikar:

Gerð: Þvottavél með þurrkara
Framleiðandi: Samsung
Mesta þyngd þvotts í þvottavél: 9 Kg
Mesta þyngd þvotts í þurrkara: 6 Kg
Stærð frístandandi í mm (HxBxD): 850x600x690
Litur: Hvítur
Orkuflokkur, þvottur: A
Orkunotkun á 100 þvotta:  49 kwst
Orkuflokkur, þvottur og þurrkun: E
Orkunotkun á 100 þvotta og þurrkanir: 377 kwst
Vinduhraði mest: 1400
Þeytivinduafköst: B
Þvottahæfni: A
Vatnsnotkun við þvott: 50L
Hitastig: Kalt til 90°C.
Hljóðflokkur: A, 72 dB við þeytivindu
Vatnsöryggi: Já
Barnalæsing: Já
Tímastillt ræsing: Já
Sjálfvirkur skammtari fyrir þvottaefni: Nei
Kolalaus mótor: Já
Nettengjanleg: Já
Ljós í tromlu: Nei
Þyngd: 86 kg
Öryggi: 10 amper


Lýsing:

Samsung þvottavélin og þurrkarinn er fullkomin sambyggð vél. Hún fer vel með þvottinn þinn og er með EcoBubble, AirWash og fjölda annara sniðugra eiginleika. Þvoðu og þurrkaðu í sama tæki án fyrirhafnar.

Gervigreind
Með gervigreind „SmartThings“ getur vélin valið þvottakerfi allt eftir tegund efnis og þyngd þvottsins. Gervigreindin lærir inn á þínar þvottavenjur, kemur með tillögur að þvottakerfum og velur sjálfkrafa þurrkunarkerfi.

Tímstillt ræsing
Hægt er að seinka ræsingu ef óskað er eftir því að vélin klári að þvo á einhverjum ákveðnum tíma t.d. um það leyti þegar farið er á fætur.

EcoBubble tækni
Þvoðu þvottinn þinn á skilvirkan hátt með minni orku, tíma og fyrirhöfn. Eco Bubble tryggir kraftmikinn en þó mildan þvott við lágan hita. Þvottaefnið leysist upp, breytist í loftbólur og smýgur þannig mun betur og fyrr inn í efnið. EcoBubble leysir þannig betur upp óhreinindi og bletti svo auðveldar sé að þvo þá en verndar jafnframt liti og áferð þvottsins.

Þvottakerfin
Þvottavélin er með öll helstu þvottakerfin eins og orkusparnaðarkerfi, bómullarkerfi, kerfi fyrir viðkvæman þvott og gerfiefni. Stutt kerfi fyrir lítinn þvott og ullarkerfi þar sem þvotti er vaggað í litlu vatnsmagni.

AirWash tækni
Fjarlægir vonda lykt úr þvottinum þínum þannig að hann lyktar alltaf eins og nýþveginn. Fjarlægir líka allt að 99,9% af bakteríum með aðeins upphituðu lofti engu vatni eða þvottaefni.

Bættu við
Gleymdir þú einhverju? Ekkert mál því AddWash hurðin gerir þér kleift að setja þvott í vélina eftir að hún er byrjuð að þvo.  

Hreinlætisgufa
Fjarlægir ofnæmisvalda og 99,9% af bakteríum Gufan losnar úr neðri hluta tromlunnar og tryggir þannig að hver flík er rétt hreinsuð.  

Leggja í bleyti
Leggja í bleyti „Bubble Soak“ hjálpar þér að losna við „þrjóska“ bletti eins og grasgrænu, kaffi og farða. Þvotturinn liggur í bleyti í ca 30 mínútur áður en þvottavélin byrjar að þvo með völdu þvottakerfi.

Tromluþvottur+
Tromluþvottur+ „Drum Clean+“ fjarlægir óhreinindi og 99,9% af bakteríum sem orsaka vonda lykt í tromlunni og fjarlægir um leið óhreinindi í kringum hurðargúmmíið. Minnir þig á þegar tími er komin á tromluþvott.

Uppsetning
Hægt er að nota gúmmífætur undir vélina til að styðja betur við hana og gera hana enn hljóðlátari. Einnig er hægt að kaupa sérstakt festisett ef ætlunin er að setja aðra vél ofan á.

Viðhald
Hafa ber í huga að hreinsa þarf allar þvottavélar reglulega. Heitt og rakamikið umhverfi getur valdið myglu og vondri lykt sem enginn vill fá í þvottinn sinn. Þvottavélin er með sérstökum tromluþvotti til að losa þig við slík vandamál.

Og svo hitt
Þurrkarinn er barkalaus með rakaskynjara. Vatn og ló sem kemur frá þurrkaranum fer út með affallinu frá þvottavélinni. Tækið er frábær lausn fyrir heimili þar sem ekki er mögulegt að hafa tvö aðskilin tæki.



Verð: 169990
Þyngd: 86.00
Flokkur: �vottavélar, �vottavélar, �vottadagar Ormsson
Vörumerki: Samsung